…alltaf í boltanum

hér blogga fótboltastelpurnar í Hetti

Um

Árið 1983 spilaði meistaraflokkur Hattar sinn fyrsta leik í Íslandsmóti.  26 ár eru því síðan stelpurnar á Egilsstöðum byrjuðu að sparka bolta og sumar sparka jafnvel enn. Í ár er breytt fyrirkomulag í 1. deild kvenna en undanfarin ár hefur riðlunum verið stillt upp eftir landshlutum. Vonandi á þessi breyting eftir að skila enn betri fótbolta og er því mjög spennandi tímabil framundan.