Plan fyrir morgundaginn og næsta æfing

Laugardagurinn 19 júní

5 min. létt skokk hita vel upp tempo cirka 30-40 %

5 min. teygja vel á

10 min. skokka tempo milli 50-60 % hraða ( cirka 3-4 hringi)

5 min. teygja vel á

10 min. skokka tempo aðeins hraðari milli 60-70 % ( cirka 5 hringi)

5 min. teygja vel á

10 min. spretta 6×50 metra ( hlé á milli spretta 30 sek) hlé 2 min, 8×30 metra ( hlé milli spretta 30 sek) hlé 2 min og síðast 10×20 metra ( hlé milli spretta 15 sek),

10 min. 3 sett – 30 magaæfingar, 30 bakæfingar og 20 armbeygjur, með hlé á milli í 2 min.

5 min. skokka rólega og teygja vel

Við sjáumst aftur á æfingu á manudaginn kl.20.00 :)

Fjáröflun og næsti leikur

Þessir snillingar mættu í fjáröflun á fimmtudaginn og mánudaginn: Rós, Rebekka, Freydís, María Emils, Fanndís, Unnur, Thelma, Þórdís, María Lena, Elva Björt, Eva Ýr og Arna. Auðvitað má ekki gleyma mömmunum Sjöfn, Kötu og Júlíu :) Plöntuðum svakalega fallegum blómum í kringum hitaveituhúsið á tjarnarbrautinni og við urriðavatn.

Næsta æfing og síðasta æfing fyrir leik er á morgun(þriðjudag) kl:8 á Vilhjálmsvelli, allar að mæta hressar á því. Svo er mæting í hettuna kl 16:30 á miðvikudaginn og leikurinn gegn ÍBV hefst kl 18:00!

Allir á völlinn að hvetja! :)

Grillpartý

Síðan eftir leikinförum við ALLAR saman í sunda þjöppum hópnum saman og tönum smá ;) Síðan förum við heim til okkar(Örnu og Evu) og grillum saman! Allir koma með sitt eigið á grillið en í boði verður salat og einhverjir dýrindis afgangar frá útskriftarveislunni hennar Örnu.

Mikilvægt er að við allar (hvort sem við erum í hóp eða ekki) mætum og hristum hópin soldið saman :)

Hópurinn!!

Hópin á morgun skipta eftirfarandi.

Bryndís, Thelma, Eva, Fanndís, Hugga, Unnur, Arna, María Lena, Kristín, Jóhanna, Rós, Alma, Guðrún, Þórdís, Rebekka og Magdalena.

Allar hinar mæta að sjálfsögðu á morgun líka klukkan hálf eitt á morgun. Við þurfum að klæða okkur á Vilhjálmsvelli svo það er mæting þar hálf eitt.

Sjáumst á morgun

Höttur - Sindri

Byrjunarliðið:
Rós
Fanndís Thelma Bryndís Karítas
Arna María L. María E. Kristín Inga
Hugrún
Jóhanna

Fyrri hálfleikur hófst með sókn Sindrastúlkna og Hattarstúlkur virkuðu óöruggar og sofandi í byrjun. Fyrsta markið kom strax á 3 mín eftir misskilning í vörn Hattar komst sóknarmaður Sindra ein í gegn og náði að klára færið í annari tilraun. Sindri virkaði mun sterkari og Hattarstúlkur ekki mættar til leiks.

Smá saman náði Höttur þó að vinna sig inní leikinn og skapa sér þrjú ágæt færi fyrst á 13 mín fékk Kristín ágætt skotfæri innan vítateigs Sindra sem markmaður Sindra varði vel. Á 23 mín fékk Kristín aftur færi eftir að Höttur hafði unnið boltann á hættulegum stað og komið honum innfyrir á Kristínu. Markmaður Sindra sá aftur við henni en Höttur náði frákastinu og var í kjölfarið dæmd aukaspyna á Sindra rétt utan við vítateig. Hattarstúlkur fóru hins vegar afar illa með það tækifæri og tóku spyrnuna stutt í stað þess að dúndra á markið sem er alltaf besti kosturinn. Þetta var góður kafli hjá Hattarstúlkum en þær náðu ekki að nýta færin.

Eftir þetta sótti Sindrastúlkur í sig veðrið og fengu þrjú mjög góð færi. Eitt þeirra eftir frábæra sókn þar sem boltinn gekk manna á milli líkt og HM væri byrjað en sóknin endaði með skoti framhjá úr dauðafæri. Eftir um hálftíma leik skorðuðu Sindrastúlkur annað mark eftir klafs í vítateig Hattar. Slysalegt mark þar sem vörn Hattar átti að gera betur. Á þessum kafla gat Sindri gert út um leikinn en þar sem þær gerðu það ekki kom að sjálfsögðu mark frá Hetti þannig er jú fótboltinn. Höttur vann boltann á miðjunni með góðri baráttu sendi Hugga boltann inn fyrir vörn Sindra þar sem Kristín komst ein gegn markmanni Sindra og skoraði af öryggi. Fátt fleira markvert gerðist í fyrri hálfleik.

Hattarstúlkur mættu betur stemdar til seinni hálfleiksins og náðu að jafna leikinn þegar um klukkutími var liðinn af leiknum. Mark Hattar kom eftir gott spil þar sem boltinn gekk frá vinstri til hægri þar sem Fanndís átti sendingu inná teig sem Jóhanna skallaði fyrir fætur Huggu sem skoraði harðfylgi, flott mark.

Í stöðunni 2-2 var jafnræði með liðunum og Höttur frekar að sækja í sig. Höttur átti amk eitt hættulegt færi í stöðunni 2-2 Bryndís tók þá aukaspyrnu á um 30 metra færi og skaut góðu skoti á mark Sindra sem fór rétt yfir markið. Skömmu seinna tapar Höttur boltanum illa á miðjunni og Sindri á langa sendingu fram inní teig Hatta þar sem Rós markmaður Hattar blindast af sólinni og missir boltann fyrir fætur sóknarmanns Sindra sem fylgir á eftir og skorar. Svekkjandi fyrir Rós sem annars átti mjög góðan leik og greip vel inní leikinn.

Hattarstelpur neituðu hinsvegar að gefast upp og héldu áfram að berjast og settu nokkrum sinnum pressu að marki Sindra en góður markmaður Sindra sá við þeim. Í lokin átti Höttur tvö þokkaleg færi og bæði komu eftir góðar aukaspyrnur frá Bryndísi en markmaður Sindra varði vel í bæði skiptin.

Heilt yfir var þetta nokkuð jafn leikur. Sindri byrjaði mun betur en Höttur vann sig vel inní leikinn. Hins vegar hafði Sindri betri tök á miðjunni og Hattarstúlkum gekk illa að byggja upp spil og svo munaði talsvert um að Arna virtist ekki geta beytt sér að fullu en hún hefur spilað vel undanfarið. Sindri spilaði betur en Höttur í þessum leik en mjög góð barátta var í Hattarliðinu í kvöld og eiga stúlkurnar skilið hrós fyrir. Með smá heppni hefði Höttur getað náð meiru út úr leiknum því í stöðunni 2-2 var allt opið.

Dómari og aðstoðarmenn hans stóðu vel fyrir sínu.

Maður leiksins var valinn og var að þessu sinni Kristín Inga :)

Visa bikars úrslit og næsti leikur

Leikið var í blíðskaparveðri á fellavelli gegn Völsung á laugardaginn og var uppstillingin á Hattarliðinu:

Rós

Unnur Thelma Eva Karítas

Arna María L. María E. Andrea

Anna Berglind

Rebekka

Á  bekknum voru: Kristín Inga, Guðrún Þóra, Heiðdís og Natalía

Leikurinn byrjaði betur hjá gestunum og settu þær 3 mörk í fyrri hálfleik en eftir hálfleikinn lifnuðum við aðeins við og vorum mun betri í síðari hálfleik, fengum við réttilega dæmt víti og tók Guðrún vítið og þrumaði boltanum í netið!

Lokatölur í leiknum voru 3-1 fyrir Völsung sem þýðir að við erum dottnar út úr Visa bikarnum, en Völsungur heldur áfram og fá þær Fylki í heimsókn á Húsavík í næsta leik.

Þá er næsti leikur í Íslandsmótinu á morgun gegn Sindra og hefst leikurinn kl 20 á Fellavelli og hvetjum við auðvitað alla til að mæta og styðja við bakið á okkur í þessum leik :)

Hópinn á morgun skipa: Rós, Fanndís, Bryndís, Thelma, Guðrún, Kristín, Jóhanna, María Lena, María Emils, Rebekka, Karítas, (Unnur), Arna, Hugrún og nokkrar til viðbótar úr 3 og 4 flokk.

Þar sem Helga Kristjana er ennþá meidd í bakinu mun Rós standa aftur á milli stangana í þessum leik en hún stóð sig mjög vel í leiknum gegn Völsung um helgina :)

Allir á völlinn!

ÁFRAM HÖTTUR :D

VISA-bikarinn

Þá er komið að fyrsta leiknum í VISA-bikarnum á móti Völsung á Fellavelli!

Mæting í te og rist er klukkan 12 uppí hettunni og þar verður hámað í sig ristuðu brauði og tei og haldinn töflufundur

Leikurinn hefst á slaginu 14 á Fellvelli og hvetjum við alla til að mæta á völlinn og hvetja okkur áfram :)

Hópinn á morgun skipa:

Rós, Eva Ýr, Thelma, Karitas, Unnur, María Lena, María Emils, Arna, Kristín, Andrea, Rebekka, Anna Berglind, Guðrún

og gætu þrjár til viðbótar bæst við þennan hóp!

Sjáumst hress á vellinum á morgun í blíðskaparveðri og tilbúin til að hvetja HÖTT áfram :D

Æfingar

Létt upphitun og léttar lyftingar í dag (miðvikudag)

Æfing kl 19:30 en ekki 18:30 eins og er á planinu á fimmtudaginn

Æfing kl 19:30 á föstudaginn en ekki 17:30 eins og á planinu

Það er verið að færa þessar æfingar vegna leikja sem eru sömu daga á þessum tímum

Sjáumst á æfingu :)

Kominn nýr tengill hérna til hliðar inn á myndir bæði gamlar og nýjar!

Reykjavíkurferðin…

Mættum Selfoss kl 20 á föstudagskvöldið og endaði leikurinn 8-0 fyrir Selfoss, staðan var 4-0 í hálfleik

Tókum létta æfingu á laugardeginum á ÍR vellinum. Þar kom þjálfari ÍR og gaf okkur miða á landsleikinn Ísland-Andorra og viljum við þakka honum kærlega fyrir það :)

Á sunnudeginum mættum við Fjölni og töpuðum þeim leik á lokamínútunum 1-0

Næsti leikur er á laugardaginn á móti Völsung í Visa-bikarnum

Næsta æfing er klukkan 19:00 á morgun (þriðjudag) en ekki kl 18:30 eins og stendur á planinu!

Reykjavíkurferð

Föstudagur:
Mæting í flug kl: 11.55.

Lending: kl:13.25.

Þær sem gista í félagsheimilinu fara með Gorazd þangað samtals 12 manns. Þegar þangað er komið, kemur liðið sér fyrir kaupir sér smá nesti og hefur gaman.

Þær sem gista ekki verða að fá einhvern til að ná í sig á flugvöllinn.

Síðan hittumst við ALLAR klukkan 16:00 á Salatbarnum í Skeifunni (Faxafeni 9 - 108 Reykjavík)  Sjá á korti (http://ja.is/kort/#q=index_id%3A236464&x=360443&y=406144&z=9&type=aerial) 

Mikilvægt er að allir verði með ALLT dótið sitt tilbúið til að fara á Selfoss strax eftir matinn!
Leggjum síðan saman af stað upp úr 17:00 (þar sem það gæti verið klikkuð umferð á þessum tíma í Rvk)

Lendum á Selfossi um 18.00 skellum í okkur smá nesti ef fólk fer að hungra ;) Klæðum okkur og hitum upp.

20.00-22.00 Við að rúlla Selfoss upp :D

Laugardagur:

11.00 Æfing (Gorazd segir okkur hvar á morgun)

12.00 - ….. Frír tími (Vil benda á að Gorazd er búinn að banna okkur að fara í sund daginn fyrir leik)

16.00 Ísland vs. Andorra landsleikur í fótbolta fyrir þá sem vilja.
18.30 Borða saman og horft á Eurovision í félagsheimilinu.

Snemma í háttinn og ná góðum nætursvefni fyrir komandi átök.

Sunnudagur: 

11.30 allir að mæta upp í félagsheimilið með sitt eigið nesti borðum saman og höfum töflufund.

12.30 farið á Fjölnisvöllinn

14.00-16.00 Við að rústa Fjölni :)

17.30 Mæting í flug

19.00 Lending á Egilsstöðum
Taka með:Dýnu, svefnpoka, kodda, takkaskó, topp, legghlífar, fótboltahæfileikana :D
Frí á mánudaginn tilvalið að fara í heita pottinn þá :)

Æfing kl 18:30 á þriðjudaginn

Allar að vera hressar og kátar og taka baráttuskapið með sér og við ætlum að spila vel og auðvitað stefnum við að sigri í öllum leikjunum :)

Athugasemdir á planinu skulu berast til Örnu s: 848-1967.

Arna og Eva (yfirplanarar)

Höttur-ÍR meistaraflokkur kvenna 1 deild B. 22.05.2010.

Leikurinn fór fram á Fellavelli í ágætisveðri, í upphafi var mikil stöðubarátta og gekk boltinn að mestu á milli mótherja.
Á 7 mín fegnu ÍR tvö hættuleg færi eftir horn þar sem illa gekk að hreinsa frá.
Á 23 mín geystist Arna upp kantinn og átti góða fyrirgjöf og datt boltinn fyir fætur Maríu Lenu eftir klafs í teignum og hún átti hörkuskot naumlega framhjá.
Á 27 mín fór Arna aftur upp kantinn, góð fyrirgjöf sem Rós tók niður og lék í átt að marki, brotið var á henni og víti dæmt. Hugrún tók vítið en markmaðurinn varði en Hugrún var fljót að átta sig og tók frákastið og þrykkti boltanum í netið. 1-0
Á 37 mín fékk ÍR horn sem ekkert varð úr, boltinn gefinn út á hæ. kant og átti Arna enn eina fyrirgjöf sem skapaði hættu en boltinn fór rétt framhjá.
Skömmu síðar senda ÍR stúlkur stungusendingu inn í gegnum vörn Hattar, varnarmaður misreiknar boltann og Una kemst ein gegn markmanni og skorar örugglega. 1-1.
Á 42 mín fær Höttur horn, góð fyrirgjöf frá Örnu og tekst ÍR ekki að hreinsa og er Hugrún fyrst að átta sig og tæklar boltann inn fyrir línuna. 2-1. Hugrún virðist eins og gott koníak, batnar með aldrinum.

Í síðari hálfleik er ÍR meira með boltann, fá horn á 60 mín og klikkaði dekkingin og náði Tinna að skora fyrir gestina. 2-2
Á 65 mín skalla tvær Hattarstúlkur saman og rotaðist Unnur Sif og var flutt á sjúkrahús.
Þrem mínútum síðar fá gestirnir horn og kemst Hafdís fram fyrir þann sem átti að gæta hennar og skallar boltann í netið. 2-3.
Eftir þetta engin teljandi færi og endaði leikurinn því 2-3 fyrir ÍR.

Hattarstúlkur spiluðu ágætlega í fyrri hálfleik með hættulegustu sóknirnar upp hæ. kantinn. Sköpuðu sér nokkur færi, skoruðu 2 mörk.
Í síðari hálfleik voru ÍR stúlkur miklu sterkari og náðu að stjórna miðjunni einnig bar á þreytu hjá Hattarstúlkum, og gengu ÍR stúlkur á lagið og því fór sem fór. Höttur er einnig með mjög ungt og reynslulítið lið.
Ýmislegt gott má þó taka úr þessum leik og er ég viss um að Hattarstúlkur koma til með að vaxa með hverjum leik.

Maður leiksins var valinn og að þessu sinni var það Hugrún Hjálmarsdóttir :)

Fyrsti leikur sumarsins!

Fyrsti leikur sumarsins er á morgun á móti ÍR kl 15 á Fellavelli.

Mæting er í te og rist kl 12:45 þar sem málin verða rædd og leiktaktíkin skipulögð. Innköst Höttur, Milan og Manchester eins gott að allir séu með þau á hreinu ;)

Ekkert annað en sigur kemur til greina og getum við (sem höfum aldur) fagnað því um kvöldið á balli með Hvanndalsbræðrum! :)  

Hvetjum alla til að mæta á leikinn og styðja okkur til sigurs!

Endurvakning hattarstelpur.blogg.is

Jæja núna er kominn tími á að endurvekja þessa síðu fyrir sumarið. Lengjubikarinn búinn og við tekur Íslandsmótið!

Fyrsti leikurinn er á móti ÍR laugardaginn 22.maí og eru aðeins 16 dagar í fyrsta leikinn. Þá er bara um að gera að vera duglegar að mæta á æfingar og þjappa hópnum saman þar sem við ætlum að mæta dýrvitlausar í fyrsta leikinn og stefnum auðvitað að sigri!

Set hérna til hliðar nýjan tengil með plani fyrir sumarið, er að elska skipulagið! Nú eru engar afsakanir fyrir að mæta ekki á æfingar, hægt að skipuleggja allt sumarið fyrir fram með tilliti til vinnu og fleira.

ÁFRAM HÖTTUR!! :)  

Æfing

Æfing á morgun fimmtudag 14.1 kl 18.15 á Fellavelli.

Allar að mæta

Gleðilegt ár

Jæja,  jæja væri nú ekki ráð að fara að lífga þessa síðu við ? 

Við ætlum að vera með meistaraflokk kvenna 2010 er það ekki ?

Hlakka ekki til að sjá ykkur úti á velli í sumar ef engin hreyfing verður á undirbúningstímabilinu !

STELPUR KOOOOOOOOOOOOOMA SOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO !!!!

ROLLAN - GAMLA