…alltaf í boltanum

hér blogga fótboltastelpurnar í Hetti

Æfing

Æfing á morgun fimmtudag 14.1 kl 18.15 á Fellavelli.

Allar að mæta

13. janúar 2010 | Meistaraflokkur kvenna | Óflokkað | 6 ummæli

Gleðilegt ár

Jæja,  jæja væri nú ekki ráð að fara að lífga þessa síðu við ? 

Við ætlum að vera með meistaraflokk kvenna 2010 er það ekki ?

Hlakka ekki til að sjá ykkur úti á velli í sumar ef engin hreyfing verður á undirbúningstímabilinu !

STELPUR KOOOOOOOOOOOOOMA SOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO !!!!

ROLLAN - GAMLA

5. janúar 2010 | Meistaraflokkur kvenna | Óflokkað | 1 ummæli

Takk fyrir mig

Sælar stelpur og aðrir lesendur þessarar síðu.

Ég vil með þessum pistli þakka kærlega fyrir sumarið, þó svo að uppskeran hafi ekki verið eins og vonast var eftir þá tel ég að við höfum lært heilmargt á þessu tímabili. Bæði hvað varðar það að missa marga leikmenn í einu og það að þurfa að byggja upp nýtt lið á skömmum tíma.
Margar ungar og efnilegar stelpur fengu að spreyta sig í sumar og fengu þar af leiðandi dýrmæta reynslu fyrir næstu tímabil, þar sem þær verða væntanlega lykilmenn í kvennaliði Hattar. Þá má ekki gleyma þeim eldri heldur, en í liði okkar er viss kjarni heimastelpna sem er gríðarlega mikilvægt að halda í á næsta árum ef Höttur ætlar sér að halda áfram í baráttunni um úrvalsdeildarsæti. Að lokum verður að nefna þær elstu, Huggu & Heru, en þær eiga ekkert nema hrós skilið fyrir framlag sitt til kvennaknattspyrnunnar hjá Hetti. Húrra!

Ég er núna kominn á þann aldur að maður verður að taka ákvarðanir sem skipta meira máli en að sparka í tuðru “einhversstaðar” úti á landi (hugsið ykkur - hélt ég myndi aldrei segja svona lagað). Í vor mun ég ljúka BA námi mínu og þar af leiðandi annaðhvort halda út á atvinnumarkaðinn eða fara í áframhaldandi mastersnám. Vinnumöguleikarnir fyrir mitt starf eru mjög takmarkaðir fyrir austan og mín framtíðarplön varðandi mastersnám eru ekki kennd hér á landi þannig að ég verð að halda utanlands til að halda áfram í námi, ef ég ákveð að velja seinni kostinn þ.e.a.s. Þetta þýðir að ég mun ekki geta haldið áfram þjálfun liðsins, þó svo að ég hefði vel getað hugsað mér það.

Að vera þjálfari kvennaliðs Hattar hefur verið mjög skemmtilegt, skemmtilegra en ég bjóst við ef ég á að vera hreinskilinn. Reynslan sem ég tek með mér frá þessu tímabili er mér dýrmæt þar sem að þetta er í fyrsta skipti á ævinni sem ég hef þjálfað stelpur auk þess sem að ég hef staðið yfir mörgum áskorunum á yfirstandandi tímabili sem hafa verið lærdómsríkar. Þetta hefur einnig verið erfitt á margan hátt, sérstaklega á þann hátt að það er mjög erfitt (erfiðara en flestir gera sér grein fyrir) að taka við liði svona stuttu fyrir mót. Ég get t.d nefnt form leikmanna, óskipulagður leikmannahópur og allt sem kemur að leikmynstri sem ástæður fyrir mikilvægi þess að hafa þjálfara allan ársins hring. En allt í allt þá hefur þetta verið fyrst og fremst gaman og eins og ég nefndi áðan lærdómsríkt. Vonandi getið þið sagt það sama.

Næsti þjálfari mfl. kv. hjá Hetti mun fá að kynnast því að vinna með skemmtilegum og metnaðarfullum hópi (þó svo að “saumaklúbbarnir” sem mynduðust stundum þegar ég ætlaði að vera með orðið gátu orðið svolítið þreyttir:) ) og er hann/hún þar af leiðandi heppin aðili. Þeir aðilar sem ég hef fengið að vita um sem koma til greina sem næsti þjálfari eru allir færir og góðir kostir, þannig að framtíð ykkar verður í mjög góðum höndum!

Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra í bili, vonandi sjáumst við sem flest á lokahófinu 19. sept. og tökum lokadjammið á þetta saman! Þakka ykkur kærlega fyrir bráðskemmtilegt sumar stelpur og vonandi verðið þið sem flestar áfram leikmenn Hattar á næsta tímabili, því ef leikmönnum fækkar ekki og aðrar bætast við þá er ég ekki í vafa um að þið verðið í toppbaráttunni!

Takk fyrir mig, bkv. Óli

10. september 2009 | Meistaraflokkur kvenna | Óflokkað | 10 ummæli

Æfing

Fyrir þær sem vilja (vonandi sem flestar) þá verður æfing á Fellavelli kl 18:30 á miðvikudag, 19. ágúst.

Látið berast!

kv. Óli

18. ágúst 2009 | Meistaraflokkur kvenna | Óflokkað | 4 ummæli

Æfing og leikur

Æfing í dag kl 18 á Vilhjálmsvelli. Vegna vallarskilyrða verður þó æfingin mjög líklega færð yfir á Fellavöll, en við mætum samt sem áður á Villa Park og dreifum okkur svo bara í bílana.

Svo er síðasti leikur tímabilsins (því miður) á morgun kl 19 á Eskifirði. Þar mætum við KFF sem við unnum 2-0 fyrr í sumar. Ljóst er að liðið okkar verður mjög ungt í þessum leik og því mikilvægt að við stöndum vel saman. Við notum æfinguna í kvöld til að stappa í okkur stálinu og gera okkur klár fyrir hörkuleik!

Svo að lokum finnst mér nauðsynlegt að óska Söru fyriliða til hamingju með glæsta þrennu í gær fyrir GRV, vonandi heldur hún bara áfram á sömu braut ásamt Söndru og Hjálmdísi og þær taki með sér reynsluna og markheppnina austur næsta sumar :)

Sjáumst hress á eftir.

kv Óli

12. ágúst 2009 | Meistaraflokkur kvenna | Óflokkað | 5 ummæli

Æfingar í vikunni

Þri 4.8: kl 19.30 á Fellavelli

Mið 5.8: Kl 19.30 á Vilhjálmsvelli

Fim 6.8: Kl 18 á Fellavelli

Fös 7.8: Frí

Lau 8.8: kl 16:30 á Fellavelli (þið byrjið líklegast sjálfar)
kv þjálfari

4. ágúst 2009 | Meistaraflokkur kvenna | Óflokkað | 3 ummæli

Vikan

Mánudagur: Kl 18 á Fellavelli (stutt um leikinn, fyrirgjafir og skot, spil)

Þriðjudagur: Kl 19:30 á Fellavelli

Miðvikudagur: Frí

Fimmtudagur: Höttur vs Sindri á Fellavelli

27. júlí 2009 | Meistaraflokkur kvenna | Óflokkað | 1 ummæli

HÖTTUR vs Selfoss

jææja stúlkur, eins og við ættum allar að vita þá eru sem stendur 3 leikir eftir í sumar. Við hljótum hins vegar allar að vilja spila meira og komast í úrstlit og til þess þurfum við að vinna alla þessa 3 leiki sem eftir eru, það byrjar stax núna á laugardaginn þegar selfoss kemur í heimsókn. Það þarf enginn að segja okkur að við getum ekki unnið þær, við sýndum mikla baráttu og mikinn vilja í seinnasta leik á móti þeim og vorum óheppnar að fá á okkur mark undir lokinn. Svo sýndum við það mæta vel í seinnasta leik á móti hk/viking að við getum vel spilað fótbolta, við áttum gott spil á köflum og loksins fór boltinn að smella í netinum sem er að sjálfsögðu ekkert nema gott mál! ef við höldum þessu áfram og tökum þetta sem við höfum veirð að gera gott í seinnustu leikjum og sýnum að við viljumgetum og ættlum að vinna þennan leik þá gerum við það, það er enginn spurning! en við þufum líka að fara að einbeitta okkur af honum og hafa hausinn í lagi og allt heila draslið, enga svona vælandi kjúlla eða einhver meiðsli! leggjum bara allt í þennan leik og þá eigum við möguleika á öllu :)

 En aðþví sem ég ættlaði nú í upphafi að tala um, þá sáuð þið kannski að leikurinn verður spilaður á seyðisfirði, vúúhú!:) og þar af að leiðandi var ég að velta því fyrir mér að bjóða ykkur í te og rist fyrir leikinn til að gíra okkur almennilega upp saman! hvernig er fólk að taka í það??

svoo að lokum þá er ég víst búin að lofa því að synda útí hólma með sundhettu og sundgleraugu ef við vinnum þennan leik, einhverjir fleir til í að slást í för?

-kjúllinn

20. júlí 2009 | Meistaraflokkur kvenna | Óflokkað | 11 ummæli

Vikan

Mánudagur 20.7: kl 19:30 á VILHJÁLMSVELLI (<— Ath. breyttur staður!)
Þriðjudagur 21.7: Kl 19:30 á Fellavelli
Miðvikudagur 22.7: Frjáls æfing, hlaup og rækt
Fimmtudagur 23.7: kl 19:30 á Vilhjálmsvelli

Föstudagur 24.7: Frí

Laugardagur 25.7: Höttur vs Selfoss kl 14 á Seyðisfjarðarvelli
Sunnudagur 26.7: Frjáls æfing, létt skokk (2×10 mín og teygja)

kv. Óli

19. júlí 2009 | Meistaraflokkur kvenna | Óflokkað | Engin ummæli

Æfing

Æfinguna á föstudag færum við til kl 18:45 og verður hún á Fellavelli. Þið byrjið sjálfar ef ég verð á æfingu sjálfur. Hún verður búinn fyrir kl 20 vegna 2.flokks leiks.

Frí um helgina.

kveðja þjálfarinn

16. júlí 2009 | Meistaraflokkur kvenna | Óflokkað | Engin ummæli

Fjáröflun

Að venju tökum við það í nefið að skvera af þryfum á einu stykki húsnæði.

Staður og stund: Eftir æfingu á morgun þriðjudag í húsnæði ísmynd.

Anna Berglind verður með lykil og upplýsingar um hvað á að gera.

13. júlí 2009 | Meistaraflokkur kvenna | Óflokkað | Engin ummæli

Vikan

Jæja stelpur, þá kemur prógram vikunnar loksins á netið. Þar sem að ég fer til Ísafjarðar á morgun verður vikan svolítið öðruvísi en venjulega, þ.e.a.s Arna verður ábyrg fyrir æfingunni á þriðjudaginn sem ég reyndar verð búinn að setja upp. Engin “sjálf-frí-dagar” verða veittir bara vegna þess að ég sé ekki til staðar eins og gerðist síðast. Ég fer fram á að þið takið á því eins og á venjulegri æfingu. Á miðvikudaginn verður síðan hefðbundin æfing en þið byrjið hana sjálfar með skokki og reit vegna þess að ég lendi ekki á Egsflugvelli fyrr en kl 18 vegna lamaðs ferðafyrikomulags (þökk sé ksí). Gerum þetta almennilega og byggjum á fínni þróun í síðustu leikjum! kv. Óli

Mánudagur 13.7 : Skokk (2×10, teygja á milli og eftir), rækt og pottur

Þriðjudagur 14.7 : Æfing á Fellavelli kl 18.30 (Arna er þriðjudagscoach - ég á Ísafirði)

Miðvikudagur 15.7 : Æfing á Fellavelli kl 18 (þið byrjið sjálfar)

Fimmtudagur 16.7 : Frí

Föstudagur 17.7 : Æfing kl 18:45 (Villa Park eða Fellavöllur)

Helgin 18 og 19.7 : Frí

13. júlí 2009 | Meistaraflokkur kvenna | Óflokkað | Engin ummæli

Pizza/Pasta-partý :P

Nú er komið að því að hrista hópinn en betur saman og að þessu sinni er það pizza/pasta veisla ala Eva Ýr sem mun eiga sér stað :D

Eftir æfinguna á morgun skellum við okkur í sturtu og síðan mætt í sjálft Partýhúsið (Litluskóga 4)  ;) eftir sturtuna. Þar sem við borðum pizzur saman og höfum gaman :D

Allir að mæta með 1000 kall með sér (geri mér ekki alveg grein fyrir hvað svona hráefni kostar) og við sjáum til hvað þið þurfið að borga á mann ;)

Endilega látið mig (Evu) vita hvort þið komist eða ekki þannig ég viti hvað ég á a kaupa mikið hráefni!!!

Og að sjálfsögðu eiga unglömbin okkar að mæta svo Jóhanna, Bryndís, Fanndís, María Lena og Sara endilega mætið þið með okkur :)

Og ef svikahrapparnir (Alex og Sonja) vilja mæta er þeim það velkomið ;)

Sjáumst hressar :D

10. júlí 2009 | Meistaraflokkur kvenna | Óflokkað | 6 ummæli

Vikan

Þriðjudagur: 19.30 á Fellavelli

Miðvikudagur: 19.30 á Fellavelli

Fimmtudagur: Frí

Föstudagur: 19.30 á Vilhjálmsvelli (<– ATH! breyttur staður)
Laugardagur: ……

Sunnudagur: HK/Víkingur - Höttur kl 14

6. júlí 2009 | Meistaraflokkur kvenna | Óflokkað | Engin ummæli

Æfing

Mánudaginn 6.júlí kl 18:30 á fellavelli!

Allar að mæta

5. júlí 2009 | Meistaraflokkur kvenna | Óflokkað | Engin ummæli