Þjálfarinn
![]()
Fyrrverandi leikmaður m.fl kk í fótbolta Gorazd Mihailov hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna. Hann mun starfa áfram sem yfirþjálfari yngri flokka Hattar og verður meira með 3.fl og 4.fl karla og kvenna.
Gorazd er byrjaður að taka UEFA PRO prófskírteini í þjálfun í heimalandi sínu Makedóníu og væntanlegur til landsins í mars. Einungis sex þjálfarar hér á landi eru með UEFA PRO skírteini, en Gorazd hefur þegar tekið UEFA A og B.
Gorazd lék fyrst með Hetti sumarið 2005 og aftur 2006. Síðar skipti hann yfir i Spyrnir og spilaði með þeim bæði í VISA bikar og deild. Hann hefur samtals leikið 29 leiki og skorað 8 mörk fyrir Hött og Spyrni.