…alltaf í boltanum

hér blogga fótboltastelpurnar í Hetti

HÖTTUR vs Selfoss

jææja stúlkur, eins og við ættum allar að vita þá eru sem stendur 3 leikir eftir í sumar. Við hljótum hins vegar allar að vilja spila meira og komast í úrstlit og til þess þurfum við að vinna alla þessa 3 leiki sem eftir eru, það byrjar stax núna á laugardaginn þegar selfoss kemur í heimsókn. Það þarf enginn að segja okkur að við getum ekki unnið þær, við sýndum mikla baráttu og mikinn vilja í seinnasta leik á móti þeim og vorum óheppnar að fá á okkur mark undir lokinn. Svo sýndum við það mæta vel í seinnasta leik á móti hk/viking að við getum vel spilað fótbolta, við áttum gott spil á köflum og loksins fór boltinn að smella í netinum sem er að sjálfsögðu ekkert nema gott mál! ef við höldum þessu áfram og tökum þetta sem við höfum veirð að gera gott í seinnustu leikjum og sýnum að við viljumgetum og ættlum að vinna þennan leik þá gerum við það, það er enginn spurning! en við þufum líka að fara að einbeitta okkur af honum og hafa hausinn í lagi og allt heila draslið, enga svona vælandi kjúlla eða einhver meiðsli! leggjum bara allt í þennan leik og þá eigum við möguleika á öllu :)

 En aðþví sem ég ættlaði nú í upphafi að tala um, þá sáuð þið kannski að leikurinn verður spilaður á seyðisfirði, vúúhú!:) og þar af að leiðandi var ég að velta því fyrir mér að bjóða ykkur í te og rist fyrir leikinn til að gíra okkur almennilega upp saman! hvernig er fólk að taka í það??

svoo að lokum þá er ég víst búin að lofa því að synda útí hólma með sundhettu og sundgleraugu ef við vinnum þennan leik, einhverjir fleir til í að slást í för?

-kjúllinn

20. júlí 2009 | Meistaraflokkur kvenna | Óflokkað | 11 ummæli