Fjáröflun
Að venju tökum við það í nefið að skvera af þryfum á einu stykki húsnæði.
Staður og stund: Eftir æfingu á morgun þriðjudag í húsnæði ísmynd.
Anna Berglind verður með lykil og upplýsingar um hvað á að gera.
Að venju tökum við það í nefið að skvera af þryfum á einu stykki húsnæði.
Staður og stund: Eftir æfingu á morgun þriðjudag í húsnæði ísmynd.
Anna Berglind verður með lykil og upplýsingar um hvað á að gera.
Jæja stelpur, þá kemur prógram vikunnar loksins á netið. Þar sem að ég fer til Ísafjarðar á morgun verður vikan svolítið öðruvísi en venjulega, þ.e.a.s Arna verður ábyrg fyrir æfingunni á þriðjudaginn sem ég reyndar verð búinn að setja upp. Engin “sjálf-frí-dagar” verða veittir bara vegna þess að ég sé ekki til staðar eins og gerðist síðast. Ég fer fram á að þið takið á því eins og á venjulegri æfingu. Á miðvikudaginn verður síðan hefðbundin æfing en þið byrjið hana sjálfar með skokki og reit vegna þess að ég lendi ekki á Egsflugvelli fyrr en kl 18 vegna lamaðs ferðafyrikomulags (þökk sé ksí). Gerum þetta almennilega og byggjum á fínni þróun í síðustu leikjum! kv. Óli
Mánudagur 13.7 : Skokk (2×10, teygja á milli og eftir), rækt og pottur
Þriðjudagur 14.7 : Æfing á Fellavelli kl 18.30 (Arna er þriðjudagscoach - ég á Ísafirði)
Miðvikudagur 15.7 : Æfing á Fellavelli kl 18 (þið byrjið sjálfar)
Fimmtudagur 16.7 : Frí
Föstudagur 17.7 : Æfing kl 18:45 (Villa Park eða Fellavöllur)
Helgin 18 og 19.7 : Frí
Árið 1983 spilaði meistaraflokkur Hattar sinn fyrsta leik í Íslandsmóti. 26 ár eru því síðan stelpurnar á Egilsstöðum byrjuðu að sparka bolta og sumar sparka jafnvel enn. Í ár er breytt fyrirkomulag í 1. deild kvenna en undanfarin ár hefur riðlunum verið stillt upp eftir landshlutum. Vonandi á þessi breyting eftir að skila enn betri fótbolta og er því mjög spennandi tímabil framundan.