Takk fyrir mig

Sælar stelpur og aðrir lesendur þessarar síðu.

Ég vil með þessum pistli þakka kærlega fyrir sumarið, þó svo að uppskeran hafi ekki verið eins og vonast var eftir þá tel ég að við höfum lært heilmargt á þessu tímabili. Bæði hvað varðar það að missa marga leikmenn í einu og það að þurfa að byggja upp nýtt lið á skömmum tíma.
Margar ungar og efnilegar stelpur fengu að spreyta sig í sumar og fengu þar af leiðandi dýrmæta reynslu fyrir næstu tímabil, þar sem þær verða væntanlega lykilmenn í kvennaliði Hattar. Þá má ekki gleyma þeim eldri heldur, en í liði okkar er viss kjarni heimastelpna sem er gríðarlega mikilvægt að halda í á næsta árum ef Höttur ætlar sér að halda áfram í baráttunni um úrvalsdeildarsæti. Að lokum verður að nefna þær elstu, Huggu & Heru, en þær eiga ekkert nema hrós skilið fyrir framlag sitt til kvennaknattspyrnunnar hjá Hetti. Húrra!

Ég er núna kominn á þann aldur að maður verður að taka ákvarðanir sem skipta meira máli en að sparka í tuðru “einhversstaðar” úti á landi (hugsið ykkur - hélt ég myndi aldrei segja svona lagað). Í vor mun ég ljúka BA námi mínu og þar af leiðandi annaðhvort halda út á atvinnumarkaðinn eða fara í áframhaldandi mastersnám. Vinnumöguleikarnir fyrir mitt starf eru mjög takmarkaðir fyrir austan og mín framtíðarplön varðandi mastersnám eru ekki kennd hér á landi þannig að ég verð að halda utanlands til að halda áfram í námi, ef ég ákveð að velja seinni kostinn þ.e.a.s. Þetta þýðir að ég mun ekki geta haldið áfram þjálfun liðsins, þó svo að ég hefði vel getað hugsað mér það.

Að vera þjálfari kvennaliðs Hattar hefur verið mjög skemmtilegt, skemmtilegra en ég bjóst við ef ég á að vera hreinskilinn. Reynslan sem ég tek með mér frá þessu tímabili er mér dýrmæt þar sem að þetta er í fyrsta skipti á ævinni sem ég hef þjálfað stelpur auk þess sem að ég hef staðið yfir mörgum áskorunum á yfirstandandi tímabili sem hafa verið lærdómsríkar. Þetta hefur einnig verið erfitt á margan hátt, sérstaklega á þann hátt að það er mjög erfitt (erfiðara en flestir gera sér grein fyrir) að taka við liði svona stuttu fyrir mót. Ég get t.d nefnt form leikmanna, óskipulagður leikmannahópur og allt sem kemur að leikmynstri sem ástæður fyrir mikilvægi þess að hafa þjálfara allan ársins hring. En allt í allt þá hefur þetta verið fyrst og fremst gaman og eins og ég nefndi áðan lærdómsríkt. Vonandi getið þið sagt það sama.

Næsti þjálfari mfl. kv. hjá Hetti mun fá að kynnast því að vinna með skemmtilegum og metnaðarfullum hópi (þó svo að “saumaklúbbarnir” sem mynduðust stundum þegar ég ætlaði að vera með orðið gátu orðið svolítið þreyttir:) ) og er hann/hún þar af leiðandi heppin aðili. Þeir aðilar sem ég hef fengið að vita um sem koma til greina sem næsti þjálfari eru allir færir og góðir kostir, þannig að framtíð ykkar verður í mjög góðum höndum!

Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra í bili, vonandi sjáumst við sem flest á lokahófinu 19. sept. og tökum lokadjammið á þetta saman! Þakka ykkur kærlega fyrir bráðskemmtilegt sumar stelpur og vonandi verðið þið sem flestar áfram leikmenn Hattar á næsta tímabili, því ef leikmönnum fækkar ekki og aðrar bætast við þá er ég ekki í vafa um að þið verðið í toppbaráttunni!

Takk fyrir mig, bkv. Óli

Ummæli

  1. Sandra:

    Takk sömuleiðis fyrir skemmtilegt sumar!

  2. Hera:

    Gaman að lesa þennan pistil frá þér heilla kallinn :) ÉG segi bara takk kærlega fyrir að fá aðeins að vera með ykkur í sumar…. Ég vil alltaf vinna og of oft ofmetið hlutina út frá stigum og sigrum….. Verkefni þessa liðs sem spilaði í sumar er svo miklu stærra en undanfarin ár og á miðju sumri (þegar útlitið var svart og sumir yfirlýsingaglaðir) þá hugsaði ég til fótboltahópsins með stolti: seigla, kraftur og samheldni skilaði mér allavega góðum minningum frá þessu sumri. Knús á ykkur stelpur og ein kreista á þig Oliver!
    Hera

  3. María Lena:

    Takk f. skemmtilegt sumar!

  4. María Lena:

    Takk f. skemmtilegt sumar!

  5. jóna ólafsd:

    takk sömuleiðis fyrir mjög skemmtilegt sumar!

  6. Hugrún:

    Váá Oliver
    Bara búinn að skrifa ogbirta lokahófsræðuna!
    Já - takk fyrir sumarið. Við tökum það jákvæða frá sumrinu og byggjum ofan á það. Framtíðin er björt í boltanum hér á Egilsstöðum. Gangi þér vel Oliver.

  7. jóna ólafsd:

    Hugrún hvernig er það, það er ekki nokkur leið að ná í þig er búin að reyna flest allar leiðir til þess, koma þrisvar heim til þín, hringja í gsm og heima síma.. bjallaðu í mig þegar þú getur ;)

  8. Arna:

    Jei skemmtilegur pistill og takk sömuleiðist fyrir skemmtilegt sumar :)

  9. Hugrún:

    Ha, ha Jóna
    Getur ekki verið - ég er alltaf heima hjá mér ;-)

  10. Gústa:

    Takk fyrir þann stutta tíma sem ég var með í sumar og fyrir að halda leyndó-inu mínu fyrir þig ;) hehehe.. Gangi þér vel með það sem þú tekur þér fyrir hendur!!

Rita ummæli

Netfangið þitt er aldrei birt. Reitir sem verður að fylla út í eru merktir með *

*

*