…alltaf í boltanum

hér blogga fótboltastelpurnar í Hetti

Æfing og leikur

Æfing í dag kl 18 á Vilhjálmsvelli. Vegna vallarskilyrða verður þó æfingin mjög líklega færð yfir á Fellavöll, en við mætum samt sem áður á Villa Park og dreifum okkur svo bara í bílana.

Svo er síðasti leikur tímabilsins (því miður) á morgun kl 19 á Eskifirði. Þar mætum við KFF sem við unnum 2-0 fyrr í sumar. Ljóst er að liðið okkar verður mjög ungt í þessum leik og því mikilvægt að við stöndum vel saman. Við notum æfinguna í kvöld til að stappa í okkur stálinu og gera okkur klár fyrir hörkuleik!

Svo að lokum finnst mér nauðsynlegt að óska Söru fyriliða til hamingju með glæsta þrennu í gær fyrir GRV, vonandi heldur hún bara áfram á sömu braut ásamt Söndru og Hjálmdísi og þær taki með sér reynsluna og markheppnina austur næsta sumar :)

Sjáumst hress á eftir.

kv Óli

12. ágúst 2009 kl. 16:29 | Meistaraflokkur kvenna | Óflokkað | 5 ummæli

5 ummæli »

  1. Vá var ekki búin að heyra þetta með Söru….til hamingju Sara!! :)

    Ummæli eftir Heiða Árna | 12. ágúst 2009

  2. takk elskurnar.. þið eruð súkkulaðibollur! ;)
    En hvenær er mæting á morgun?

    Ummæli eftir Sara | 12. ágúst 2009

  3. Mæting í Hettuna kl 17.00 og ekki mínútu seinna.

    Ummæli eftir Hugrún | 13. ágúst 2009

  4. Jæja gamli hvenær verða æfingarnar?

    Ummæli eftir Sara | 17. ágúst 2009

  5. Heyrðu, megið búast við plani hérna í fyrramálið..

    Ummæli eftir Óliver | 17. ágúst 2009

Rita ummæli