HÖTTUR vs Selfoss

jææja stúlkur, eins og við ættum allar að vita þá eru sem stendur 3 leikir eftir í sumar. Við hljótum hins vegar allar að vilja spila meira og komast í úrstlit og til þess þurfum við að vinna alla þessa 3 leiki sem eftir eru, það byrjar stax núna á laugardaginn þegar selfoss kemur í heimsókn. Það þarf enginn að segja okkur að við getum ekki unnið þær, við sýndum mikla baráttu og mikinn vilja í seinnasta leik á móti þeim og vorum óheppnar að fá á okkur mark undir lokinn. Svo sýndum við það mæta vel í seinnasta leik á móti hk/viking að við getum vel spilað fótbolta, við áttum gott spil á köflum og loksins fór boltinn að smella í netinum sem er að sjálfsögðu ekkert nema gott mál! ef við höldum þessu áfram og tökum þetta sem við höfum veirð að gera gott í seinnustu leikjum og sýnum að við viljumgetum og ættlum að vinna þennan leik þá gerum við það, það er enginn spurning! en við þufum líka að fara að einbeitta okkur af honum og hafa hausinn í lagi og allt heila draslið, enga svona vælandi kjúlla eða einhver meiðsli! leggjum bara allt í þennan leik og þá eigum við möguleika á öllu :)

 En aðþví sem ég ættlaði nú í upphafi að tala um, þá sáuð þið kannski að leikurinn verður spilaður á seyðisfirði, vúúhú!:) og þar af að leiðandi var ég að velta því fyrir mér að bjóða ykkur í te og rist fyrir leikinn til að gíra okkur almennilega upp saman! hvernig er fólk að taka í það??

svoo að lokum þá er ég víst búin að lofa því að synda útí hólma með sundhettu og sundgleraugu ef við vinnum þennan leik, einhverjir fleir til í að slást í för?

-kjúllinn

Ummæli

  1. arna:

    Hahaha ánægð með þig litla mín!! :)
    Og já ég er sko til í te og rist… en því miður verð ég að beila á sundi útí hólma þar sem ég þarf að bruna í brúðkaup á stöddann annars hefði ég pottþétt verið með ;)

  2. Sandra:

    Mér líst vel á þetta framtak hjá þér Sara og hlakka ég mikið til að sjá þig með sundhettu að synda og jafnvel mun ég koma með þér..

    En alveg rétt hjá þér, við verðum að byrja að hugsa um leikinn ekki seinna en núna og koma hausnum og viljanum í lag! Síðan þurfum við líka að mæta á æfingar og leggja okkur 150 % fram eins og við ætlum að gera í leiknum. Við erum klárlega búnar að taka grín æfinguna fyrir þennan mánuð :)

    Sjáumst á æfingu í kvöld stelpur elhressar og tilbúnar að gera eitthvað gáfulegt!
    Vonum að Óli verði með æfinguna!!!!

    Friður

  3. jóna:

    sandra!! þú lætur söru bara fá heiðurinn af þessu bloggi, þetta var nú ég ;)

  4. Sonja Björk:

    Snild… Ég mæli með litríkri sundhettu og armkútum svo þú týnist ekki Jóna mín. :) Hefði svo viljað vera vitni af þessum atburði en ég sendi upptökumann á svæðið með cameru sem súmmar… :D

    ÁFRAM HÖTTUR!!!

  5. Sonja Björk:

    Snilld ……. Ekki síld

  6. Sandra:

    Sorry Jóna mín sá ekkert nafn og gat mér til um þetta en kjúllinn ert auðvitað þú!

    PS
    Stelpur! Muna að borða allt lífrænt ræktað fram að leik!

  7. Eva Ýr:

    ég þarf víst lika að bruna á stöddan í brúðkaup svo ég fæ að sjá upptökuna of syndi með þér í anda :D Og ég er sko game í te og rist ;) Nefndu stað og stund og ég verð það :D

  8. Eva Ýr:

    þar ;)

  9. Óliver:

    Þetta lýst mér á Jóna, svona á þetta að vera!
    Ég verð með æfinguna í kvöld og kem með smá plan varðandi laugardaginn…

  10. Hugrún:

    Að sjálfsögðu sendum við þig ekki eina í þessa svaðilför Jóna mín - stöndum þétt við bakið á þér eins og alltaf (eða syndum)

  11. Gústa:

    AMEN Jóna! Þið takið þetta á laugardaginn og næsta tvo líka..ekki spurning! :) En takk fyrir skemmtilega æfingu í gær stelpur mínar. Það var ekkert smá gaman bæði að spila smá fótbolta og bara að hitta ykkur :D Ég var samt ekkert eðlilega búin á því eftir æfinguna og hef ákveðið að næst þegar ég mæti þá slaka ég kannski aðeins meira á! heheh.. Ég mæti samt á völlinn á laugardaginn og skal hvetja ykkur eins og enginn sé morgundagurinn :)

Rita ummæli

Netfangið þitt er aldrei birt. Reitir sem verður að fylla út í eru merktir með *

*

*