…alltaf í boltanum

hér blogga fótboltastelpurnar í Hetti

Vikan

Jæja stelpur, þá kemur prógram vikunnar loksins á netið. Þar sem að ég fer til Ísafjarðar á morgun verður vikan svolítið öðruvísi en venjulega, þ.e.a.s Arna verður ábyrg fyrir æfingunni á þriðjudaginn sem ég reyndar verð búinn að setja upp. Engin “sjálf-frí-dagar” verða veittir bara vegna þess að ég sé ekki til staðar eins og gerðist síðast. Ég fer fram á að þið takið á því eins og á venjulegri æfingu. Á miðvikudaginn verður síðan hefðbundin æfing en þið byrjið hana sjálfar með skokki og reit vegna þess að ég lendi ekki á Egsflugvelli fyrr en kl 18 vegna lamaðs ferðafyrikomulags (þökk sé ksí). Gerum þetta almennilega og byggjum á fínni þróun í síðustu leikjum! kv. Óli

Mánudagur 13.7 : Skokk (2×10, teygja á milli og eftir), rækt og pottur

Þriðjudagur 14.7 : Æfing á Fellavelli kl 18.30 (Arna er þriðjudagscoach - ég á Ísafirði)

Miðvikudagur 15.7 : Æfing á Fellavelli kl 18 (þið byrjið sjálfar)

Fimmtudagur 16.7 : Frí

Föstudagur 17.7 : Æfing kl 18:45 (Villa Park eða Fellavöllur)

Helgin 18 og 19.7 : Frí

13. júlí 2009 kl. 17:36 | Meistaraflokkur kvenna | Óflokkað | Engin ummæli

Engin ummæli »

Engin ummæli fram að þessu.

Rita ummæli